top of page

Guðlaugur Geir Kristmanns

Staður fyrir unglinga í Grafarholti?

 

Það er alveg ótrúlegt hvað það er mikill skortur á stöðum fyrir unglinga til þess að hittast á hér í Grafarholtinu. Við höfum KFC, Krónuna og félagsmiðstöð en það sárvantar einhvers konar sjoppu/bar eða stað þar sem fólk gæti komið og horft á íþróttaleiki og liðin sín spila. Ef það er lítið að gera og engir góðir leikir eru í gangi þá er alltaf hægt að fara til þess að hitta félagana og fá sér eitthvað að drekka og/eða borða. Svo vantar líka alltaf stað sem ungt fólk getur hangið, slæpst eða bara slakað á. Þú getur ekki alltaf farið á KFC bara til þess að hanga með vinum. Þú ferð á KFC ef þú ætlar að borða, hvort sem þú ert ein/n eða, eins og flestir, með vinum eða fjölskyldu. Þá er allt í lagi að hanga þarna á meðan þú ert að njóta djúpsteikta matarins. Krónan er verslun sem er bara eins og Bónus. Þú getur farið þangað til að kaupa nammi en þar er enginn staður til að hanga. Ef þú ert bara að slæpast þarna þá ert þú bara furðufugl og verður líklegast ásakaður fyrir að stela.

 

Félagsmiðstöð er góð hugmynd fyrir ákveðin ungmenni. Það gæti verið að þar sé skipulegt starf og þá vilja kannski ákveðnir mæta en alls ekki allir. Ég veit og flestir vinir mínir erum á þeirri skoðun að félagsmiðstöðvar séu ekki staðir sem við viljum eyða tíma okkar á vegna þess að þær eru ætlaðar fyrir yngri krakka sem eru að verða unglingar en eru ekki orðnir unglingar. Það sem ég vil fá í hverfið okkar er annað hvort íþróttabar eða sjoppa. Á íþróttabarinn er gaman að skella sér í poolið eða aðra leiki sem eru á staðnum. Það er líka góð skemmtun fyrir okkur unglingana að heyra ölvuðu kallana segja okkur skemmtilegar sögur. Þar væri líka meiri stemmning fyrir okkur unglingana þar sem við getum hlustað á músík, spjallað við aðra og hugsanlega er búið að ákveða skemmtilegan viðburð þarna.

 

Sjoppa væri góð hugmynd en unglingar mega vera á slíkum stöðum töluvert lengur, en það væru ekki jafn margir skipulagðir viðburðir. Sjoppa væri frábær staður til að hitta aðra unglinga þar sem þeir geta talað um nýjar myndir, hvaða vörur er mest varið í og kynnt fyrir hver öðrum tónlist og áhugamál. Það væri alveg frábært að fá íþróttabar eða sjoppu hingað.


Vonandi verða breytingar og Guð blessi Ísland.

bottom of page