top of page

Aron Daði B. Arnkelsson

Laga götuna og planið hjá BSÍ

 

Nálægt miðbænum er umferðarmiðstöð sem heitir BSÍ. Þar er mikil umferð.

​

Í sumarfríinu mínu þá fór ég þangað af því að ég og frændi minn vorum að spila Pokemon Go. Göturnar og planið þar eru mjög illar farnar og það á eftir að malbika stóran hluta af þessu svæði. Þegar ég sá þetta þá varð ég hissa og mér fannst skrýtið að þetta sé ekki lagað af því að ferðamenn geta gengið þarna um og dottið og meitt sig. Einnig gætu dekkin á bílunum eyðilagst og lágir bílar gætu fests í þessum holum. Þetta er ekki fallegt og það er ekki gott að vera með svona götur í landi sem er allt svo flott og við með heitt vatn. Það eru ekki allar götur svona slæmar, en þessi er mjög slæm.

 

Ef þessi gata verður ekki löguð þá verður þetta alltaf verra og verra og fólk hættir að sækja þjónustu á BSÍ.

bottom of page